17.10.2011 | 19:26
Tekið fram úr á 150
Eins og fleiri helgar fór KK til útlanda að keppa í fótbolta á föstudaginn. Hann keyrði með hinum ISB raiders krökkunum í 6 tíma til Frankfurt þar sem þau kepptu á móti Frankfurt International School. Niðurstaða ferðalagsins var eitt jafntefli og eitt tap - sem var víst ásættanlegt þar sem Frankurtararnir voru eldri en öðlingarnir úr ISB. KK stóð sig eins og hetja, er varnarjaxl sem fær þó að stundum að spila á miðjunni. Við hjónaleysin skelltum okkur á eftir fótboltakrökkunum. Keyrðum á Volvonum til Frakkafurðu þar sem við borðuðum besta sushið hingað til á pínulitlum stað með fullt af japönum og drukkum stóran bjór og radler í turni (alvöru gæða þýskum turni). Við horfðum svo á fótbolta á laugardagsmorgninum með foreldrum sem vildu tala um bókamessu og íslensk efnahagsmál. Vorum ekki alveg viss hvort var ofar á vinsældalistanum hjá okkur (en allir virtust sehr messuspenntir yfir íslenskum bókum, forsetanum og öllu því sem fylgir).

Á leiðinni niður eftir er hámarkshraðinn stundum 130 og stundum bara eins hratt og þú þorir. Á einum svoleiðis kafla var Tómas stífur við stýrið á 150 þegar múslímsk slæðukona kom askvaðandi með blikkandi ljós og flaut þar sem Tómas var víst að keyra allt of hægt - komst varla úr sporunum á þýskan mælikvarða. Næsta föstudag keppa Raiders svo í Lúxemborg og svo er lokamótið í París um miðjan nóvember. Feðgarnir eru annars í vikulegum fótbolta með íslenskum köllum á sunnudagsmorgnum. KK leggur mikla áherslu á að Tómas verði honum ekki til skammar. Tómas reynir að verða við því - en það tekst ekki alveg alltaf. Til þess að uppfylla íslenska tilkynningaskyldu þá tilkynnist hér með að veðrið er gott. Sól og 14 gráður yfir daginn. Ekki amalegt það.
