20.1.2007 | 16:35
Allt að gerast
Nú er sko allt að gerast í ameríkunni. Hjördís er að verða innfædd og Kristinn Kári er byrjaður að læra arabísku. Tómas er að bera saman hinu ýmsu fæðutegundir frá Suður-Ameríku (bæði á föstu og fljótandi formi). Skólanum hennar Hjördísar fannst hún vera að eyða fullmiklum tíma heima hjá sér svo þeir réðu hana í vinnu. Frá og með næstu viku verður hún Teacher's Assistant (ís. kennarasleikja). Eftir að hafa verið í 150% vinnu í rúm tvö ár þá tekur frökenin nú að sér 10% starf, og það í skrifstofuvinnu. Við fengum líka tékkhefti í gær. Komumst þá að því að við kunnum ekki að skrifa svoleiðis. Þetta lítur bara út eins og skömmtunarmiðar frá haftaárunum. Þegar við spurðumst fyrir um millifærslur til þess að greiða reikninga á netinu þá sagði Bank of Amerika (ísl. Landsbanki Ameríku) að það væri svo sem allt gott og blessað. Millifærslan tæki þó 7-12 daga. Við fyllum nefnilega út á netinu og þeir senda svo viðkomandi ávísun. Jamm, þetta eru alvöru bankaviðskipti. Annars hefur verið tekið upp nýtt tímatal hér við Flóann. Tíminn er nú mældur í mysingsdollum (það er u.m.þ.b. ein dolla á viku). Húsbóndinn er búinn að henda sér út arabískunámið og verður nú daglega í tímum. Kristinn Kári situr og lærir með og er búinn að ná framburðinum frábærlega. Kannski það verði þá bara arabíska fyrst og mandarína svo.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Sko, hvort ykkar er að skrifa þetta? Ég þarf að vita í hvaða fíling brandararnir mínir á þessari síðu eiga að vera.
Fróði.
Fróði (IP-tala skráð) 20.1.2007 kl. 21:57
Þetta er unnið í sameiningu. Eins konar hópvinna.
Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, 20.1.2007 kl. 22:42
Kennarasleikja hihihi, bókin góða á örugglega eftir að koma sér að góðum notum núna
. Sveitt kveðja frá Ástralíu Helga
Helga (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 08:18
Jæja það á að komast í gegnum þennan skóla á sleikjunni, bara eins og í Menntó!!!!
Kannski þú takir smá grátur á þetta og call it a day!!!! Hjödda mín þú ert nú meiri dugnaðar-forkurinn (eða er það skrifað froskurinn
) Mikið er gott að þið eruð að plumma það þarna, var nú ekki við öðru að búast. Leiðinlegt að við hittumst ekkert í jólafríinu þínu, brjálað að gera hjá öllum. Gerum eitthvað næst esskan.
Hafið það þrusu gott
kveðja frá Mosó
Láretta
Láretta (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 13:29
Ótrúlega gaman að fylgjast með hvað þið eruð að dunda í ameríkunni
Bestu
kveðjur
ykkar
vinur
Da-Mixa.
Da-Mixa (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.