Já, en er ekki hægt að taka bílpróf á íslensku

Kleppur er hress og heilbrigður staður miðað við Umferðastofuna í San Francisco, þar sem við fórum í myndatöku og próftöku í dag. Ein ásísk kona gekk um og öskraði "I have wait thlee and half months". Áhugi starfsmannanna á henni var eins og að hún hafi gengið þarna um gólfin mánuðum saman. Við fengum á endandum að taka skriflegt próf - gátum m.a. svarað hvort áfengi gerir mann betri eða verri ökumann - og stóðumst það með sóma (rétt slefuðum þó myndatökuna). Hins vegar vorum við í síðustu röðinni í 45 mínútur þar sem maður neitaði að fara úr röðinni nema að hann fengi að taka bílprófið á hebresku - enda ekki nema sjálfsagt að boðið sé upp á öll opinber próf á tungumálum smáríkja við Miðjarðarhafið. Honum var á endanum rutt úr röðinni af stórri blökkukonu (á alla kanta) með ljóst hár. Kristinn Kári var á meðan í fyrstu pössuninni sinni hjá Eggerti, Lindu og Degi. Við fórum svo öll á leikvöll þar sem sést yfir næstum alla borgina. Það þarf oft að hleypa þeim út að brenna orku eftir að hafa setið við skólaborðið í sex tíma. Þar voru hundar sem eiga skilið frekar að vera með bílpróf en margir þeirra sem tóku með okkur prófið í dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er greinilega aldrei dauð stund þarna hjá ykkur, og ætti því ekki að leiðast. Það er skömm að þið hafið ekki fengið að taka prófið á íslensku (náðu þið ekki?). Er núna verið að plana bílakaup?? 

Láretta (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 15:12

2 identicon

Þetta er eina tækifærið ykkar til þess að keyra um á blæjubíl. Ekki klikka á því. Kaupið Ford Mustang með blæju.

Þröstur (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 16:46

3 identicon

Ég væri sko alveg til í að rúnta um Kaliforniu á blæjubíl....

Helga (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 09:24

4 identicon

Ég held að maður geti alveg eins sest í bala fullan af vatni eins og að fara að keyra um á blæjubíl í hinn votviðrasömu borg dýrðlingsins heilags Franciscusar. Raunar sit ég einmitt í vatnsfylltum bala einmitt núna. Það er sko lífið.

Da-Mixa (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 11:41

5 identicon

Það er ekki rigningin sem truflar í þarna úti það er þokan. Þá er fínt að vera með blæjuna niðri og góð þokuljós. Eina hættan er árekstur við sporvagn eða humar.

Þröstur (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 12:55

6 identicon

Fyndið að þú hafir minnst á þetta. Ég ákvað einmitt að hafa balann minn fullan af lifandi humrum til þess að gera þetta spennandi. Eins gott að ég er þegar búinn að eignast erfingja.

Da-Mixa (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband