Grá hár í stað hoppukastala

Það eru ekki bara fjögra ára börn sem eiga afmæli - þó að það hafi verið minna um hoppukastala og andlitsmálningu í 27 ára afmæli húsföðursins á sunnudaginn. Hugsanlega hefði mátt nýta andlitsmálarann í að lita gráu hárin. Við byrjuðum daginn á því að fara í messu (eins og alir ættu að gera þegar þeir ná þessum merkilega aldri) í Glide-kirkjunni í Tenderloine. Kirkjan er samkomustaður þeirra sem aðrar kirkjur vilja ekki, t.d. er þarna gospelkór homma - svo og fjölda blökkukvenna sem syngja og dansa. Eftir það var farið heim í hádegismat með öllum vinum okkar hér (Egger, Linda og Dagur komu sem sagt í mat). Boðið var upp á heitan rétt og súkkulaðiköku eins og í öllum góðum afmælum. Tómas fékk hjólabretti og úr í afmælisgjöf á öðrum fjölskyldumeðlimum - mjög töff (en aðeins þeir sem búa með bráðahjúkrunarfræðingum ættu að reyna þetta á þessum aldri). Annars vonum við allir kjósi með álverinu á laugardaginn - bara til þess að krónan haldist sterk.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Passaðu þig á hjólabrettinu Tómas. Ég gleymi seint slysinu sem varð svo afdrifaríkt og batt enda á glæstan fimleikaferil þinn á augabragði.

Þröstur (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 17:37

2 identicon

Til hamingju með 27 ára + viku afmælið Tómas minn.

Kveðja Láretta 

Láretta (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 12:32

3 identicon

Söknuðum þín á Nuga Sodd 2K7 gamli. Kveðja Da-Mixa, aðdáandi smárétta.

Da-Mixa (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband