17.5.2007 | 05:21
Kosningar og arabíska ekki undir einu þaki
Það er allt í hers höndum við flóann. Tómas er búinn að taka þrjú arabískupróf og á eftir eitt. Það síðasta er í arabískri málfræði og haldið á uppstigningardag af öllum dögum. Í munnlega prófinu var rætt um heima og geima - samt aðallega "Múhammeð á mál. Má Múhammad mála".
Það var ekkert rætt um kosningarnar í munnlega prófinu - enda er orðið kosningar ekki fyrsta orðið sem kennt er í arabísku (kóngur var aftur á móti eitt það fyrsta). Það var ekki einu sinn rætti um varnarsigur Samfylkingarinnar (vann Framókn ekki líka sigur - þeim hafði verið spáð undir 10% en fengu næstum 12%). Kosningasjónvarpið var búið á mjög kristilegum tíma, eða svona upp úr miðnætti - sem var sérstaklega gott. Hápunktar kvöldsins var vafalítið þegar Samúel Örn var vakinn til þess að komast á þing - eða öllu fremur þegar hann datt aftur af þingi áður en rann af honum.
Annars er Kristinn Kári líka að taka miklum framförum. Hann var að lesa upphátt á ströndinni á sunnudaginn. Hann las um hús. Húsið var með skrítið þak. Barnið sagði því stundarhátt "The house has a fag" - jamm, við pökkuðum sama stuttu seinna.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Það er allavegana klárt að Jótlandspósturinn má ekki mála Múhameð. Það hefur skelfilegar afleiðingar fyrir útflutning á lífrænni jógúrt frá Aarla til Miðausturlanda. Annars þótti mér hápunktur kosningavökunnar vera þegar Sigríður Klingenberg mætti í jakka sem hún var búin að sauma nærbuxurnar sínar á og barði saman ferskeytlu um meyfæðingar í Mjóafirði.
Da-Mixa (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 17:11
Hæ Hjördís mín... ekki nenniru að senda mér allar heimilisfang upplýsingar í emaili þannig að ég geti skellt á þig eitt stykki skóm áður en þú kemur heim? Hvenær komiðið svo annars heim?
Anna Guðmunda (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.