18.9.2007 | 03:43
Ég vildi að ég væri tannlaus - þá þyrfti ég ekki að tannbursta mig
Krstinn Kári missti fyrstu tönnina sína í dag - og nr.2 er á leiðinni. Hann er sérstaklega stoltur. Annars fer KK núna mikinn á hjólabretti um allt. Eins og vandræðaunglingur, nema með hlífar út um allt. Hann er strax orðinn betri en Tómas, og þurfti þó ekki mikið til. Nú er heimilislífið að komast í samt, en tannlaust, lag eftir að gestirnir fóru (ekki fleiri strandaferðir og Napatúrar í bráð). Þriðjudagskvöld fara Tómas og Hjördís á Peter, Björn og John - KK verður á meðan í heimsókn hjá degi.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Hva.... fær KK ekki að fara með á P,B og J? Hann gæti auðveldlega sungið með ,,.....so slow....so slow.....".
Helga
Helga (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.