LET'S GO WARRIORS

Warriors unnu New York Knights í æsispennandi leik í kvöld. Við og Sean Penn skemmtum okkur konunglega undir góðum körfuboltaleik, klappstýrum, lukkudýri, dúndrandi tónlist og dansandi Ameríkönum á risaskjá (reyndar skemmtum við okkur örugglega betur en Sean (eins og við köllum hann) þar sem það var púað á hann. Fengum annars sushi á laugardaginn - slepptum þó sæbjúganu í þetta sinn.körfubolti 001 

Annars hefur verið rigning hérna undanfarna daga. Rignir og rignir - svo mikið að sjónvarpsdagskráin var rofin á föstudaginn með tilkynningu um... já rigningu. Við fengum svo tölvupóst frá leigusölunum þar sem við vorum vöruð við rigningunni - enda hefur hún verið sérstaklega blaut - og okkur ráðlagt að kaupa dósamat og vasaljós. Erik og Bylgja koma svo um miðjan mánuðinn - erum spennt yfir því.körfubolti 002


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjá okkur heldur áfram að snjóa og snjóa. Það er nú vetur svo þetta er bara nokkuð í lagi. Flottur bolur Kristinn minn sem þú ert í. Kveðja mamma, amma og Ásdís Rut.;***

Guðbjörg (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 20:39

2 identicon

Sæl flotta fjölskylda, gaman að sjá hve vel gengur að aðlagast ameríkananum.... gott að maður sé látinn vita að það muni rigna....... síminn hefði ekki stoppað hér heima frá júlí til desember...... það rigndi hér í 6 mánuði samfleytt..... Hafið það bara sem allra best, kærar kveðjur frá Circle Lane (Hringbrautinni)

Inga, Viðar, Erlingur Ísar og Birkir Gunnar (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband