Sumar í mars

Í tilefni hlaupársins hefur verið gott veður hérna við flóann undanfarna viku - sól og hátt í 20° hita (nokkurn veginn sama veður og heima). Tómas og KK hafa verið að æfa baseball og svo skellti öll smáfjölskyldan sér í hjólatúr á sunnudaginn. Við hjóluðum heiman frá okkur og yfir Golden Gate. Þetta er í þriðja skipti sem KK hjólar þessa leið - en í fyrsta skiptið án hjálpardekkja. Við  stoppuðum í sædýrasafninu á leiðinni og klöppuðum skötum og hákörlum. Við tókum svo bátinn frá Sausalito aftur yfir flóann í eftirmiðdaginn. Veðrið á að haldast eitthvað áfram í vikunni - verst að skóli hjólatúr 002og vinna munu eitthvhjólatúr 003að þvælast fyrir hjólatúr 005lífinu.hjólatúr 001

Ömmustrákur

Hér er KK í nýju lopapeysunni frá ömmu Grétu.skíði 002

Á brettum

skíði 005Erik og Bylgja eru búin að vera í heimsókn síðustu viku - sem hefur verið sérstaklega skemmtilegt með nýjum bjórum, snjóbrettum, brimbrettum og góðum mat. KK og Erik urðu strax bestu vinir en eins og KK sagði: "ég vissi ekki að við Erik værum vinir fyrr en hann kom í heimsókn" - já ótrúlegt. Gestirnir höfðu komið áður til San Fran og verið hérna í íbúðinni okkar í mánuði síðasta sumar svo það þurfti lítið fyrir þeim að hafa. Við skelltum okkur til Sonoma að smakka vín og fórum gott út að borða oft og vel. Á fimmtudaginn fóru Tómas, Erik og Bylgja svo að surfa á Stinson beach á hávaðaroki og risaöldum. Gestirnir stóðu sig eins og atvinnumenn og allir komust heilu og höldnu heim. Á föstudaginn leigðum við svo jeppa og keyrðum upp til Tahoe.skíði 004 Við skíðuðum/brettuðum allan laugardaginn og hálfan sunnudaginn. KK fór aftur í brettaskólann á laugardeginum og svo með okkur upp í 2800 metra hæð og brettaði alla leiðina niður. Eggert og Linda voru líka á svæðinu svo það var haldið Eurovisionpartý á laugardagskvöldið eftir að stelpurnar höfðu farið í nudd. Það snjóaði og snjóaði frá hádegi á laugardaginn svo það var þykkt púður yfir öllu svæðinu svo það var hægt að skíða vel á milli trjánna (KK gerði það þó ekki - en hann prófaði að stökkva). Á sunnudeginum keyrðum við heim eftir að bíða í tvo tíma á meðan snjóhengjur yfir veginum voru sprengdar. Við gátum því komið hjónakornunum heilum og höldnum í flugvélina heim eftir mjög skemmtilega heimsókn.

Erik og Bylgja mætt í frelsið


Erik og Bylgja lentu eins og til stóð á föstudagskvöldið hress og kát eftir góðan svefn á leiðinni. Þau ætla að vera hérna hjá okkur fram yfir næstu helgi - en við förum á skíði um næstu helgi. Við fórum vel út að borða á laugardaginn eftir fordrykk á Tiki Room, sem er einn mest tackí staður sem sést hefur. Við skelltum okkur til Sonoma á sunnudag til þess að væta aðeisn í kverkjunum og sýna þeim höllina okkar (Ledson). Þau þekkja þó orðið borgina næstum jafnvel og við eftir að hafa verið hérna í fjórar vikur síðasta sumar. Erik og Kristinn Kári eru annars orðnir "Best Budies" - og eiga orðið leynimerki.

Veikindi

Það hefur ekkert af viti hjá okkur síðustu daga. Kristinn Kári hefur verið veikur frá því á sunnudaginn með hor og hita - en fer vonandi í skólann á morgun, fimmtudag, til þess að taka þátt í Valentínusardeginum í skólanum (og þannig að allir hlut að eigandi komist út).

Sunshine, lollypops and rainbows everywhere...

febrúar 002Eftir rúman mánuð af rigningu og vosbúð birtist sólin á laugardaginn. Hún ætlar að vera með okkur næstu vikuna amk auk þess sem hitinn verður um og yfir 15°. Kannski við getum lánað einhverjum heima keðjurnar okkar. Kannski á flugvélarnar. Til þess að halda upp á góða veðrið kom Dagur í heimsókn á laugardaginn í sleepover. Við fórum með strákana í Dolores Park þar sem var risapartý. Strákarnir kipptu sér þó ekki mikið upp við það - og ekki einu sinni við karlana í kjólunum sem dönsuðu eins og þeir ættu lífið að leysa (KK benti reyndar á konu á föstudaginn og sagði "hún er með kallaandlit og konuhár, það er fyndið", sem betur fer á íslensku). Það ríkir annars mikil spenna yfir því að Erik og Bylgja koma á föstudaginn næsta. Reynar tók KK upp á því að veikjast á sunnudaginn með hita og kvefi. Vonandi klárast það sem fyrst svo allir verði hressir fyrir góða veðrið. Meðfylgjandi er mynd af KK og Degi með kandíflos í Dolores Park .

Skíðageðveiki og snjóbrettatöffari

Við lögðum í'ann til Lake Tahoe á föstudaginn kl. 17. Lentum í smáumferðarteppu og snjókomu og vorum komin á leiðarenda upp úr kl. 22 (tveimur tímum á eftir áætlun).skíðaferð 003 Við skelltum okkur svo í skíði snemma á laugardagsmorgun. Kristinn Kári fór í snjóbrettakennslu hjá Henry, eða Hinriki eins og hann vildi kalla hann. Dómur kennarans var: Wow, Kristinn learned to board like a pro!!! og KK vildi helst ekki hætta - sem er gott þar sem við förum aftur eftir þrjár vikur. Skíðasvæðið í er yfir 2000 metra hæð með tugum lyfta og er í tveimur fylkjum (Kaliforníu og Nevada) sjá www.skiheavenly.com. Það snjóaði og snjóaði stóran hluta úr deginum en veðrið var stórfínt á milli trjánna. Allir skemmtu sér konunglega.

Þegar við vöknuðum á sunnudeginum var snjór yfir öllu - næstum metri í fjallinu og hálfur metri yfir Ragnari. Við (sem sagt Tómas) þurftum að grafa bílinn út og setja keðjur undir hann (í fyrsta skipti á ævinni). Við komumst þó á endanum burt - og hlökkum mikið til að koma aftur.

skíðaferð 005

 


Gone skiin'

Á föstudaginn er stefnan tekin á helgarskíðaferð í Lake Tahoe. P1050019

Eins og má sjá af myndina hér til hliðar héldum við hátíð í tilefni af því með fánum, þjóðbúningum og söngvum, já og auðvitað skíðakórónum. Það er spáð snjókomu, vindi og snjókomu en það er of seint að afpanta hótelið (og svo er búið að kaupa keðjur á Ragnar) - og þegar maður er í yfir 2000 m hæð þá er kannski ekki hægt að búast við sól og sumaryl. KK ætlar að læra á snjóbretti og hjónaleysin munu prófa skíða- og brettagræjurnar frá hvort öðru og ömmu grétu/afa binna. KK vildi fara í brettakennslu af því að hann "kann á skíði" að eigin sögn (hefur farið einu sinni). Stefnum svo á að fara aftur þegar Erik og Bylgja koma í heimsókn.

Hjördís er annars á Trauma Nurse Core Course í skólanum "the stuff you need to be a real trauma nurse". Hún verður útskrifuð úr því rétt fyrir skíðaferðina - svo þá er bara að pakka St. Bernharðshundinum, koníakinu og plástrunum svo stúlkan geti bjargað deginum (sérstaklega ef Tómas stingur sig á sverðinu sem hann heldur á á myndinni).

Látum fylgja með mynd af mæðginunum í leit að peningum í sjóræningjaskipi undir Golden Gate brúnni - 15 péningar í hús.P1190072


LET'S GO WARRIORS

Warriors unnu New York Knights í æsispennandi leik í kvöld. Við og Sean Penn skemmtum okkur konunglega undir góðum körfuboltaleik, klappstýrum, lukkudýri, dúndrandi tónlist og dansandi Ameríkönum á risaskjá (reyndar skemmtum við okkur örugglega betur en Sean (eins og við köllum hann) þar sem það var púað á hann. Fengum annars sushi á laugardaginn - slepptum þó sæbjúganu í þetta sinn.körfubolti 001 

Annars hefur verið rigning hérna undanfarna daga. Rignir og rignir - svo mikið að sjónvarpsdagskráin var rofin á föstudaginn með tilkynningu um... já rigningu. Við fengum svo tölvupóst frá leigusölunum þar sem við vorum vöruð við rigningunni - enda hefur hún verið sérstaklega blaut - og okkur ráðlagt að kaupa dósamat og vasaljós. Erik og Bylgja koma svo um miðjan mánuðinn - erum spennt yfir því.körfubolti 002


Reynt að endurræsa bandaríska hagkerfið

kastali 005

Frá því að smáfjölskyldan flutti í frelsið hafa ömmur og aðrir velvildarmenn KK gefið honum dollara. Krakkinn hefur safnað þeim saman í gullkistu og legið á þessu eins og ormurá gulli. Þegar hann fór að telja hvað kominn væri mikill péningur kom í ljós að hann átti nóg fyrir stærsta playmokassanum - í heiminum. KK pantaði sér því stóra góða playmokastalann á internetinu. Kastalinn kom svo í dag og var hann byggður á einu kvöldi, svona eins og Róm. Barnið hefur sjaldan verið jafnánægt. Ekki skemmdi fyrir að í póstinu var líka kort frá ömmu Grétu - hann vill að því tilefn minna á að honum finnst fátt skemmtilegra en að fá send póstkort með myndum af Íslandi.

Annars er rigning við flóann og skítakuldi (fer stundum undir 10 gráður). Íslenskir lopasokkar og súkkulaði halda á okkur lífi (svo og ein og ein hvítvínsflaska). Hjónaleysin þurfa líka að tala saman núna (eða finna sér bók að lesa) þar sem verkfall handritshöfunda er búið að eyðileggja amerískt sjónvarp. Svo er það NBA leikur á sunnudaginn. Förum á leik Golden State Warriors og NY Knicks hérna hinum megin við brúna í Oakland.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband